10. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. október 2023 kl. 15:08


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 15:08
Elva Dögg Sigurðardóttir (EDS), kl. 15:08
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 15:08
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:08
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 15:08

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir boðuðu forföll.
Ágúst Bjarni Garðarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:08
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) 184. mál - endurskoðendur o.fl. Kl. 15:08
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Maríu Guðjónsdóttur frá Viðskiptaráði Íslands, Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins og Margréti Arnheiði Jónsdóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

Nefndin samþykkti að óska eftir minnisblaði frá menningar- og viðskiptaráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa.

3) 63. mál - skattalegir hvatar vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks Kl. 15:27
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir með tveggja vikna umsagnafresti og ákvað að Ágúst Bjarni Garðarsson verði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 15:27
Oddný G. Harðardóttir, framsögumaður nefndarinnar í 3. máli - réttlát
græn umskipti, óskaði eftir að málið yrði tekið á dagskrá.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:28